Verkefnið Brú
Það var um kvöld er sólin seig
í svölum Unnarhyl.
Ég úti gekk á grænum teig
og gáði veðurs til.
– Margrét Halldórsdóttir
Af hverju að byggja Brú?
Oft er lítil tenging á milli heimafólks og fræðimanna. Þekking beggja hópa er því að mestu bundin innan hvors hóps fyrir sig og lítið flæði upplýsinga gengur á milli. Þess vegna er nauðsynlegt að byggja brú á milli þessara aðila. Verkefnið Brú gengur út á að tengja þá fjölmörgu fræðimenn sem stunda rannsóknir í héraðinu og íbúa (grúskara) sem einnig sinna stórmerkilegri og fjölbreyttri upplýsingaöflun eða búa yfir annarri þekkingu.
Brú verður vettvangur til að veita upplýsingar um þær fjölþættu rannsóknir sem tengjast
Þingeyjarsveit. Framgangur rannsókna og niðurstöður þeirra eru ekki endilega aðgengilegar fyrir
heimamenn eða er lítið miðlað til almennings. Með auknu aðgengi og upplýsingaflæði gæti afrakstur þeirra og gögn nýst betur til fróðleiks og atvinnusköpunar. Sama má segja um kunnáttu, þekkingu og
gagnaöflun heimafólks sem oftast er lítt aðgengileg öðrum.
Með Brú má stuðla að auknu hugvitsdrifnu atvinnulífi hér í nýsameinuðu sveitarfélagi Þingeyjarsveitar t.d. í formi mennta- og menningartengdrar ferðaþjónustu eða skapandi ferðaþjónustu sem byggir á þekkingu, sögu, menningu og náttúrufari svæðisins eða með framleiðslu á vörum sem tengjast staðbundinni þekkingu á auðlindum s.s. jurtum og jurtalitun, matarhandverki eða annarri verklegri þekkingu… af nógu er að taka.
Með hugtakinu skapandi ferðamennska er átt við að ferðamaðurinn taki virkan þátt og læri eitthvað nýtt sem iðkað er á svæðinu sem hann heimsækir. Það getur verið tengt menningu og menningararfi, matarmenningu eða iðn eins og t.d. handverki.
Brúarkynningar
Brúarkynningar eru samverustundir á vegum Huldu þar sem sagt er frá margvíslegum verkefnum og
akademísku starfi sem tengist Þingeyjarsveit. Fræðafólk, íbúar og nemar kynna rannsóknir sínar en
Brúarkynningar eru einnig hugsaðar sem vettvangur samræðna og hugmyndaflæðis.
Fyrsta spor Huldu í að kynna fræðastarf og verkefni var að standa fyrir Brúarkvöldum á árinu 2023. Á
Brúarkvöldum voru kynnt ýmis verkefni og rannsóknir víða í Þingeyjarsveit. Brúarkvöldin voru styrkt af
SSNE.
Fylgist með hér á vefsíðunni, í Hlaupastelpunni og á samfélagsmiðlum þar sem tíma- og staðsetningar
Brúarkynninga verða auglýstar.